Erlent

Indjánar hreinsa slæma orku Bush á helgistað

Rústirnar í Iximche
Rústirnar í Iximche

Maya-indjánar í Gvatemala hafa undirbúið sérstaka athöfn til að hreinsa fornan helgistað í Iximche eftir að George Bush hefur heimsótt staðinn. Bush er nú í heimsókn í landinu þar sem hann hittir forseta landsins og ætla þeir að ræða bæði öryggismál og viðskipti landanna.

Gvatemala er næst síðasta landið sem Bush heimsækir á ferðalagi sínu um Suður- og Mið-Ameríku en þegar hefur hann heimsótt Brasilíu, Úrúgvæ og Kólumbíu. Iximche-rústirnar eru um 80 kílómetra vestur af höfuðborginni og eru sem fyrr segir forn helgistaður Maya-indjána.

Trúarleiðtogi þeirra lét hafa eftir þessi orð: „Nei herra Bush, þú getur ekki troðið á og vanvirt minningu forfeðra okkkar. Þetta er ekki búgarðurinn þinn í Texas".

Búist er við því að mikið verði um dýrðir þegar Bush kemur til Iximche, fornir söngvar sungnir og dansar stignir. Þetta er forn höfuðborg Maya-indjána sem var lögð í rúst árið 1524 af spænskum landnemum.

Indjánarnir segjast hinsvegar ekki vilja vera eins og hvert annað minnismerki í skoðunarferð forsetans. „Við munum brenna reykelsi og setja blóm á þá staði sem herra Bush gengur um til að hreinsa út slæmu orkuna", sagði einn leiðtoga indjánanna. Frá þessu er greint á fréttavef BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×