Erlent

Bush lofar Kólumbíu stuðningi

AP

George Bush Bandaríkjaforseti lofar Kólumbíu meiri efnahagsaðstoð og viðskiptasamningum og lýsir yfir stuðningi við Alvaro Uribe forseta landsins.

Bush er nú á ferðalagi um Suður-Ameríku og er nú í Kólumbíu. Bush lofaði Uribe og stjórn hans fyrir árangur í baráttunni gegn eiturlyfjabarónum og uppreisnarmönnum. Þetta er fyrsta heimsókn Bandaríkjaforseta til Bogotá í 25 ár.

Ekki tóku allir honum jafn fagnandi en hundruð mótmælenda brenndu bandaríska fánann og höfðu uppi ólæti á meðan Bush ók í gegn um borgina í brynvarðri limósínu. Lögregla notaði táragas og vatnsslöngur til að dreifa mótmælendum.

Bush hefur á ferðalagi sínu lagt áherslu á að styrkja tengsl við þá leiðtoga sem eru hallir undir Bandaríkinn en sífellt fleiri ríki álfunnar hafa kosið sér vinstrisinnaða leiðtoga og víða ríkir hörð andstaða við Bush vegna Íraksstríðsins og innflytjendastefnu hans. Sérstaklega hefur Hugo Chavez forseti Venesúela reynst Bush óþægur ljár í þúfu en hann hefur ferðast um álfuna og hitt leiðtoga á sama tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×