Erlent

Herlið Dana farið frá Írak

Danir hafa dregið meginþorra herliðs síns heim frá Írak, tveimur vikum fyrr en áætlað var. Nú eru einungis 150 hermenn eftir af þeim 400 sem upprunalega voru sendir þangað, en hinir dvelja nú í Kúveit. Talsmenn danska hersins segja þetta ekki gert af öryggsástæðum, heldur hafi gengið betur en við var búist að ganga frá flutningunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×