Erlent

Laug að konan sín væri dáin

Vitalie Varince, 38 ára gamall moldóvskur yfirmaður í verksmiðju, fékk lánaðar tæplega 370 þúsund krónur frá starfsmönnum sínum til að borga fyrir jarðarför eiginkonu sinnar, sem hann sagði hafa látist í bílslysi þegar hún var ófrísk. Konan var hins vegar enn sprelllifandi.



Varinca var handtekinn og ákærður fyrir fjársvik eftir að vinir hans kíktu í heimsókn til að athuga hvernig honum liði. Vinum hans brá heldur betur í brún þegar konan hans kom fullfrísk til dyra. Þetta kom fram á fréttavef Ananova.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×