Erlent

Eflir herinn og eykur njósnir

Vladimír pútín
Vladimír pútín

Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagðist í gær ætla að styrkja her landsins og auka njósnir í öðrum löndum. Aðgerðir Pútíns eru svar við hugmyndum Bandaríkjamanna um að koma upp eldflaugavarnakerfi í Póllandi og Tékklandi og senda bandarískt herlið til Austur-Evrópu.



Rússlandsforseti sagði að hugmyndir Bandaríkjamanna væru ógn við öryggi Rússlands.



Pútín tók ekki fram gegn hvaða þjóðum aðgerðir hans beindust. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi hafa hins vegar sagt að Rússar hafi aukið njósnir í löndunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×