Erlent

Fimm Tamil tígrar féllu á Sri Lanka

Stjórnarhermenn í Colombo, höfuðborg Sri Lanka.
Stjórnarhermenn í Colombo, höfuðborg Sri Lanka. MYND/AFP

Fimm Tamil tígrar féllu þegar til átaka kom milli sveita þeirra og stjórnarhersins á Sri Lanka í norðvesturhluta landsins í gærkvöldi. Talsmenn Tamil tígra sögðust hafa slasað fjölda hermanna í átökunum.

Aðeins nokkrum klukkustundum fyrr náði lögreglan í höfuðborg landins, Colombo, að koma í veg fyrir sprengjutilræði á útifundi þar sem Mahinda Rajapaksa, forseti Sri Lanka, ætlaði að halda ræðu. Talið er að um 4.500 hafi látið lífið í átökunum á Sri Lanka á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×