Deilt um útgáfu á bók Hitlers 23. júlí 2007 05:15 Í fangelsinu hafði hinn verðandi nasistaforingi nægan tíma til að skrifa bókina alræmdu. Nordicphotos/getty
Virtur sagnfræðingur í Þýskalandi vill að hin umdeilda bók Adolfs Hitlers, Mein Kampf, verði endurútgefin í Þýskalandi. Sökum höfundarréttarlaga hefur bókin, sem var ein sú umdeildasta á 20. öldinni, ekki verið gefin út frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar en árið 2015 verður öllum frjálst að gefa hana út þar sem þá verða liðin 70 ár frá láti höfundarins. Fréttavefur Der Spiegel greinir frá þessu. Hörst Möller, yfirmaður stofnunar um samtímasögu í München, hefur áhyggjur af því að árið 2015 kunni nýnasistar að koma til með að misnota textann að því er hann sagði í samtali við þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung. „Á meðan Mein Kampf er ekki fáanleg í útskýrðum texta eru engin takmörk fyrir einfeldningslegum tilgátum um efni bókarinnar. Akademísk útgáfa gæti tekið burt hinn einkennilega goðsagnakennda blæ sem umlykur Mein Kampf.“ Eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar féll höfundarréttur Mein Kampf í skaut Bæjaralands, sem er eitt af sambandslöndum Þýskalands. Stjórnvöld þar hafa síðan ávallt neitað að gefa leyfi fyrir útgáfu bókarinnar undir því yfirlýsta markmiði að koma í veg fyrir útbreiðslu hugmyndafræði nasismans. Afstaðan er einnig byggð á „ábyrgð og virðingu fyrir fórnarlömbum Helfararinnar þar sem endurútgáfa myndi sýna þjáningu þeirra lítilsvirðingu,“ að því er fréttavefur Der Spiegel hafði eftir talskonu fjármálaráðuneytis Bæjaralands, sem fer með höfundarréttinn, á miðvikudag. Hugmynd Möllers er misvel tekið meðal þýskra fræðimanna. Yfirmaður stofnunar um rannsóknir á andúð í garð gyðinga í Berlín, Wolfgang Benz, finnst hugmyndin fáránleg. „Hvernig geturðu sett skýringar við 800 blaðsíðna einræðu þar sem Hitler opinberar galna heimsmynd sína? Þú þyrftir að skrifa eftir hverja einustu línu: „Hitler hafði rangt fyrir sér hér“ og síðan „Hitler er alveg úti á túni hérna“ og svo framvegis.“ Benz telur jafnframt að lítið myndi ávinnast þó að bókin yrði gefin út nú með skýringum þar sem nýnasistar og hægriöfgamenn muni hvort sem er gefa hana út um leið og höfundarrétturinn dettur úr gildi. „Og það er enginn að fara að kaupa akademíska útgáfu fyrir hundruð evra þegar þeir geta keypt ódýra kilju frá hægrisinnuðum útgefanda fyrir tvær evrur.“
Mest lesið Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Erlent Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Innlent „Við ætlum ekki að líða þetta“ Innlent Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Innlent Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Innlent Fleiri fréttir Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Sjá meira