Erlent

Söng rangan þjóðsöng

Söng rangan þjóðsöng á þjóðhátíðardeginum.
Söng rangan þjóðsöng á þjóðhátíðardeginum. AFP

Yves Leterme, sem sækist eftir embætti forsætisráðherra Belgíu, söng rangan þjóðsöng í viðtali við sjónvarpsfréttamenn á þjóðhátíðardaginn á laugardag. Í stað þess belgíska söng hann franska þjóðsönginn.



Leterme, sem er leiðtogi Flæmska kristilega demókrataflokksins, reynir nú að mynda samsteypustjórn í Belgíu. Atvikið þykir hið vandræðalegasta og var myndband af því komið á netið í gær. Þar sést að Leterme syngur „La Marseillaise“, þjóðsöng Frakka, í stað „La Brabanconne“, belgíska þjóðsöngsins.



Seinna um daginn náðust myndir af Leterme að tala í síma í miðri trúarathöfn í tilefni sjálfstæðis Belgíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×