Erlent

Krefjast fangaskipta í kvöld

Talsmaður talibana í Afganistan sagði í gær að afgönsk yfirvöld hefðu frest fram til klukkan sjö í kvöld til að afhenda handsamaða talibana í skiptum fyrir 23 kóreska gísla, sem talibanar eru með í haldi.



Talsmaður talibana hafði áður sagt að yfirvöld hefðu frest fram til klukkan sjö í gærkvöldi til að afhenda fangana. Afganskir embættismenn ræddu við mannræningjana í gær til að reyna að leysa deiluna, en herlið er staðsett þar sem talið er að Suður-Kóreumennirnir séu í haldi, ef ske kynni að ákveðið yrði að beita vopnavaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×