Erlent

Ætlar í verkfall

Barack Obama
Barack Obama

Barack Obama, einn af frambjóðendum demókrata til forseta Bandaríkjanna, lofaði forkólfum verkalýðsfélaga á laugardagskvöld að hann mundi taka þátt í verkföllum með þeim ef hann næði kjöri á næsta ári.



„Ég gekk með verkamönnum í verkfalli í Chicago í seinustu viku og sagði þeim að ef þeir væru enn þá að berjast eftir fjögur ár kæmi ég aftur sem forseti Bandaríkjanna til að ganga með þeim,“ sagði Obama á ráðstefnu stærsta verkalýðsfélags ríkisstarfsmanna í Iowa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×