Enski boltinn

Móðgun við enska þjálfara

Raymond Domenech
Raymond Domenech AFP

Franski landsliðsþjálfarinn Raymond Domenech segir að enskir þjálfar eigi að líta á það sem móðgun að knattspyrnusambandið þar í landi hafi enn og aftur leitað út fyrir landsteinana til að ná í landsliðsjálfara.

Flestir sem viðruðu skoðanir sínar á ráðningu Capello voru jákvæðir og töldu Capello einn hæfasta manninn sem völ væri á. Domenech setur ekkert út á Capello sem þjálfara, en segir þessa þróun vera áhyggjuefni fyrir enska þjálfara.

"Ákvöðun sambandsins að ráða útlending aftur er ekki jákvæð. Enska liðið þarf þjálfara sem er með sama hugarfar og þjálfarinn. Ég ber virðingu fyrir Capello og þetta snýst ekki um það að hann sé Ítali - heldur snýst þetta um það að enskir þjálfarar hafa fullan rétt á því að vera móðgaðir í kjölfar þessarar ráðningar," sagði landsliðsþjálfari Frakka.

Nokkrir aðrir þjálfarar hafa tekið í sama streng og hafa áhyggjur af framtíðinni. Þar af eru þrír stjórar í ensku úrvalsdeildinni, þeir Mark Hughes frá Blackburn, Steve Coppell hjá Reading og Gareth Southgate hjá Middlesbrough.

Aðeins heimamann, takk

"Þegar ég spilaði fyrir England undir stjórn Sven-Göran, fannst mér fyrst að það væri allt í lagi að ráða útlending, en núna hef ég skipt um skoðun. Mér finnst að aðeins ætti að koma til greina Englendingur í starfið," sagði Gareth Southgate og Steve Coppell hjá Reading er sammála.

Vildi að Capello væri enskur

"Mér finnst þetta dapurlegt. Ég er stotur enskur þjálfari og ég vil heimamann í starfið," sagði Coppell. "Capello hefur sannarlega frábæra ferilskrá og ég vildi óska að hann væri Englendingur. Við erum nú búin að koma okkur í þá stöðu að það verður mjög erfitt fyrir Englending að fá þetta starf í framtíðinni."

Vonsvikinn fyrir hönd enskra þjálfara

Mark Hughes, sem er fæddur í Wales og stýrði landsliði sínu áður en hann tók við hjá Blackburn árið 2004, segir útlitið dökkt fyrir enska þjálfara.

"Því lengur sem útlendingar stýra enska landsliðinu - því erfiðara verður fyrir Englendinga eða Breta að landa því í framtíðinni. Ég er vonsvikinn fyrir hönd enskra þjálfara og nú er annar erlendur þjálfari búinn að fá þetta risatækifæri," sagði Hughes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×