Allardyce veit að starf hans er í hættu 4. desember 2007 11:23 Sammi ræður á St. James´ Park NordicPhotos/GettyImages
Sam Allardyce, stjóri Newcastle, segist gera sér fulla grein fyrir því að hann fái ekki mikið lengri tíma til að koma liði sínu á sigurbraut eftir afleitt gengi á leiktíðinni. Newcastle tekur á móti Arsenal í úrvalsdeildinni á miðvikudagskvöldið og nú eru farnar að berast slúðursögur af því að bæði leikmenn og stuðningsmenn Newcastle séu farnir að ókyrrast. "Það þýðir ekkert að vera að tala í kring um hlutina - ég er kominn undir smásjána og ég verð að fara að landa sigrum hið fyrsta. Við erum að ganga í gegn um erfiða tíma núna þegar við skoðum úrslitin, en ég held að við getum komið okkur út úr ógöngunum jafn fljótt og við lentum í þeim," sagði Allardyce í samtali við breska sjónvarpið. Bresku blöðin halda því sum fram að ef Newcastle tapar fyrir Arsenal annað kvöld - verði Allardyce rekinn og goðsögnin Alan Shearer fenginn til að taka við starfi hans. "Ef Alan tekur við Newcastle einn daginn - vona ég að það verði ekki fyrr en ég verð búinn að bæta liðið verulega og tilbúinn að skilja við búið líkt og ég gerði þegar Sammy Lee tók við Bolton," sagði Allardyce. Hann er tilbúinn að viðurkenna að sumir leikmanna liðsins séu ósáttir við starfsaðferðir hans, en er með einfalda lausn á því vandamáli. "Viðræður mínar við leikmenn snúast einmitt um þetta. Leikmenn eru oft ekki sammála manni um eitt og annað, en það er ég sem er knattspyrnustjórinn og því er það ég sem veit hvað þeim er fyrir bestu. Ég veit meira en þeir og það er þess vegna sem ég er í stjórastólnum en ekki þeir," sagði Allardyce.
Enski boltinn Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira