Enski boltinn

Scholes frá í þrjá mánuði

Elvar Geir Magnússon skrifar
Paul Scholes.
Paul Scholes.

Paul Scholes er með sködduð liðbönd á hné og leikur ekki með Manchester United næstu þrjá mánuði. Þessi 32 ára miðjumaður varð fyrir meiðslunum á æfingu í síðustu viku.

Þetta er áfall fyrir United en fyrir er miðjumaðurinn Michael Carrick á meiðslalistanum. Það er þó reiknað með að Carrick geti farið að æfa á nýju í þessar viku.

Reikna má með því að Anderson fái aukna ábyrgð í kjölfarið á þessum meiðslum hjá Scholes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×