Enski boltinn

Meiðsli herja á Liverpool

Elvar Geir Magnússon skrifar
Fernando Torres.
Fernando Torres.

Spænski sóknarmaðurinn Fernando Torres hjá Liverpool verður frá í þrjár vikur vegna meiðsla. Þá er ljóst að landi hans og samherji hjá Liverpool, miðjumaðurinn Xabi Alonso, verður frá í talsverðan tíma eftir að hafa ristarbrotnað.

Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Liverpool enda þessir menn lykilmenn í liðinu. Ekki er alveg ljóst hve lengi Alonso verður frá.

Báðir þessir leikmenn fóru meiddir af velli í 1-1 jafnteflinu gegn Arsenal í gær. Argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano fór einnig meiddur af velli en meiðsli hans eru ekki eins alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×