Erlent

Stormur herjar á austurströnd Bandaríkjanna

Fólk á gangi í storminum á Coney-eyju við New York í dag.
Fólk á gangi í storminum á Coney-eyju við New York í dag.

Fresta þufti hundruðum flugferða á austurströnd Bandaríkjanna í dag vegna óveðurs sem gengið hefur yfir þar um slóðir. Um er að ræða storm sem farið hefur yfir Bandaríkin og valdið þar usla.

Gríðarmikil úrkoma fylgdi storminum sem varð til þess að fresta þurfti 400 flugferðum á þremur flugvöllum í New York. Þá urðu fjölmörg heimili rafmagnslaus á Long Island en þar var jafnvel óttast að miklar skemmdir yrðu á húsum við ströndina þar sem ölduhæð yrði mikil.

Reiknað er með að það bæti í úrkomuna í kvöld þannig að veðrinu er langt því frá slotað og hafa yfirvöld því mikinn viðbúnað. Þá var einnig búist við mikilli rigningu og þrumuveðri allt frá Flórída til Nýja-Englands og varað við flóðum víða á Austurströndinni.

Talið er að rekja megi fimm dauðsföll til stormsins þegar hann gekk yfir suðurhluta Bandaríkjanna en þar fylgdi honum meðal annars snjókoma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×