Enski boltinn

Carragher segir Liverpool eiga erfitt verkefni framundan

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool.
Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool. NordicPhotos/GettyImages

Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, segir að liðið eigi erfitt verkefni fyrir höndum þegar þeir spila seinni leikinn gegn Toulouse í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liverpool vann fyrri leikinn í dag á útivelli, 0-1. Útimarkið setur Liverpool í sterka stöðu fyrir seinni leikinn en Carragher segir verkið aðeins hálfnað.

„Í gegnum árin höfum við náð góðum úrslitum á útivelli en tapað á heimavelli," segir Carragher. „Þetta var frábært mark hjá Andriy (Voronin). Við vorum samt ekki að spila nógu vel."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×