Erlent

Hættir að leita að gjöreyðingarvopnum í Írak

Frá og með deginum í gær var allri leit af gjöreyðingarvopnum í Írak hætt. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að hætta formlegri leit sem hófst árið 1999. Bandaríkjamenn notuðu meinta gjöreyðingarvopnaeign Íraka sem rök fyrir innrás í landið.

Vopnaleitarmenn Sameinuðu þjóðanna fór frá Írak skömmu áður en Íraksstríðið hófst árið 2003. Eftir það höfðu Bandaríkjamenn umsjón með allri vopnaleit í landinu og fulltrúum Sameinuðu þjóðanna einungis falin tilfallandi hliðarverkefni.

Hvorugur hópurinn hefur fundið gjöreyðingarvopn eða langdrægar eldflaugar í Írak þó Bandaríkjamenn og Bretar hafi haldið því fram að slík tól væri þar að finna. Rússar sátu hjá í atkvæðagreiðslunni í Öryggisráðinu í gær en aðrar þjóðir, þar á meðal Bandaríkjamenn, greiddu atkvæði með tillögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×