Erlent

Lögreglan í Bretlandi leitar enn manna

Jón Hákon Halldórsson. skrifar
Lögreglan vaktar Heathrow flugvöll.
Lögreglan vaktar Heathrow flugvöll.

Heimildir Sky fréttastofunnar herma að einn maður gangi laus, sem talið er að tengist hryðjuverkaárásinni í Glasgow í gær og bílsprengjunum sem fundust í miðborg Lundúna í fyrradag. Samkvæmt upplýsingum Sky fréttastofunnar var viðbúnaðarstig á Bretlandseyjum hækkað í gær af ótta við að hann eða fleiri láti til skarar skríða einn síns liðs eða í samstarfi við aðra.

 

Mennirnir fimm sem eru í haldi bresku lögreglunnar vegna málsins eru ekki af breskum uppruna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×