Erlent

Könnun Sarkozy í hag

Nicolas Sarkozy frakklands­forseti Meirihluti á þingi veitir Sarkozy ótvírætt umboð til að hrinda áætlunum sínum í framkvæmd.
Nicolas Sarkozy frakklands­forseti Meirihluti á þingi veitir Sarkozy ótvírætt umboð til að hrinda áætlunum sínum í framkvæmd. MYND/AFP

UMP-flokkur Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, myndi hljóta fjörutíu prósenta fylgi yrði gengið til þingkosninga nú, meðan sósíalistar fengju aðeins 28 prósent samkvæmt könnun sem birt voru í gær. Kosið verður til franska þingsins í júní.

Yrði þetta niðurstaðan fengju Sarkozy og bandamenn hans 365 til 415 sæti af 577 sætum neðri deildarinnar. Sterkur þingmeirihluti er Sarkozy mikilvægur til að hrinda í framkvæmd áætlun sinni um efnahagslegar og félagslegar umbætur í Frakklandi.

Leiðtogi Sósíalistaflokksins, Francois Hollande, varaði kjósendur við því um helgina að mikill meirihluti Sarkozy og bandamanna hans myndi færa allt vald í hendur forsetanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×