Erlent

Pólskir læknar farnir í verkfall

Meira en 200 af 600 sjúkrahúsum Póllands veittu einungis bráðaþjónustu í gær eftir að pólskir læknar fóru í verkfall.

Hundrað sjúkrahús í viðbót hóta sömu aðgerðum.

Læknarnir krefjast rúmlega hundrað prósenta launahækkunar en mánaðarlaunin eru í dag tæplega þrjátíu þúsund krónur fyrir almenna lækna og tæp sjötíu þúsund fyrir sérfræðilækna.

Forsætisráðherra landsins, Jaroslaw Kaczynski, sagði að laun heilbrigðisstarfsmanna ættu að hækka en að Pólland hefði ekki ráð á að mæta kröfum læknanna.

Mikið er um að læknar flytjist burt frá Póllandi vegna lágra launa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×