Erlent

Gæfan að snúast Ahern í vil

Bertie Ahern Hefur verið forsætisráðherra Írlands í tíu ár.
Bertie Ahern Hefur verið forsætisráðherra Írlands í tíu ár. MYND/AP

Íbúar tveggja lítilla eyja við norðvesturströnd Írlands, Arranmore og Tory, greiddu í gær atkvæði í þingkosningum á Írlandi, þremur dögum á undan öðrum íbúum landsins, sem ganga til atkvæðagreiðslu á fimmtudaginn. Þetta var gert til að tryggja að atkvæði eyjarskeggjanna, sem samtals eru um 700 talsins, kæmust örugglega í tæka tíð í talningu.

Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum virðist Fianna Fail, flokkur Bertie Ahern forsætisráðherra, ætla að hafa sigur þrátt fyrir að hafa stjórnað landinu í tíu ár. Allar fyrri skoðanakannanir bentu hins vegar til þess að bandalag vinstri- og miðjuflokka stjórnarandstöðunnar myndi hafa sigur á stjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×