Erlent

Á ekki neinn bankareikning

Jaroslaw er forsætisráðherra og Lech forseti Póllands.
Jaroslaw er forsætisráðherra og Lech forseti Póllands. MYND/AP

Jaroslaw Kaczinsky, forsætisráðherra Póllands, segist ekki eiga neinn bankareikning, heldur leggur hann alla sína peninga inn á bankareikning Jadwigu móður sinnar. Þetta segir hann alls enga sérvisku.

„Ég vill ekki lenda í þeim aðstæðum að einhver greiði peninga inn á minn reikning án minnar vitundar, og daginn eftir myndi ég lesa um það í blöðunum,“ sagði Kaczinsky til útskýringar í blaðaviðtali á sunnudag.

Hann gaf þó engar skýringar á því hvers vegna einhver ætti að vilja greiða fé inn á bankareikning án hans vitundar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×