Erlent

Fundu mannlausa snekkju úti fyrir ströndum Ástralíu

Snekkjan sem fannst undan norðausturströnd Ástralíu.
Snekkjan sem fannst undan norðausturströnd Ástralíu. MYND/AP

Björgunarsveitir Ástralíu leita nú þriggja manna af snekkju sem fannst á reki úti fyrir norðausturströnd landsins. Leitað er bæði á sjó og í lofti en það var flugmaður þyrlu sem rak augun í snekkjuna á miðvikudag.

Björgunarlið kom hins vegar að henni fyrr en í dag og þá kom í ljós að kveikt var á mótornum, tölvur voru í gangi og sömuleiðis talstöð snekkjunnar. Þá var einnig búið að leggja á borð.

Málið þykir allt hið dularfyllsta því engin hjálparbeiðni hefur borist frá snekkjunni. Björgunarliðið hefur nú GPS-tæki snekkjunnar til skoðunar en með því getur það rannsakað ferðir hennar síðustu dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×