Erlent

Forsetaframbjóðendur í Frakklandi luku kosningabaráttu sinni

Segolene Royal, sem getur orði fyrsti kvenforseti Frakklands, og Jose Luis Zapatero, forsætisráðherra Spánar, á kosningafundi í Toulouse í gær.
Segolene Royal, sem getur orði fyrsti kvenforseti Frakklands, og Jose Luis Zapatero, forsætisráðherra Spánar, á kosningafundi í Toulouse í gær. MYND/AP

Flestir af frambjóðendum í forsetakosningum í Frakklandi, sem fram fara á sunnudag, luku í gær kosningabaráttu sinni. Hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy verður sigurvegar fyrri umferðar kosninganna ef marka má skoðanakannanir.

Alls eru tólf manns í framboði í forsetakosningunum í Frakklandi en talið er að aðeins þrír þeirra eigi raunhæfa möguleika á að taka við af Jacques Chirac sem forseti Frakklands.

Þetta eru íhaldsmaðurinn Nicolas Sarkozy, sósíalistinn Segolene Royal og miðjumaðurinn Francos Bayrou. Öll luku þau kosningabaráttu sinni í gær í suðurhluta landsins. Sarkozy var í Marseille, Bayrou í borginni Pau nærri Pýreneafjöllunum og í Toulouse fékk Royal skoðanabróður sinn frá Spáni, forsætisráðherrann Jose Luis Zapatero, til að ávarpa kosningafund.

Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum nýtur Sarkozy fylgis á bilinu 28-30 prósenta kjósenda, Royal hefur 23-25 prósenta stuðning og Bayrou er með 18-19 prósenta fylgi. Hins vegar er um þriðjungur kjósenda enn óákveðinn svo útlit er fyrir spennandi kosningar á sunnudag.

Ekki er gert ráð fyrir að einn frambjóðandi fái hreinan meirihluta og því munu þeir tveir frambjóðendur sem flest atkvæði hljóta á sunnudag takast á um forsetaembættið í seinni umferð kosninganna þann 6. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×