Erlent

Stríðsyfirlýsing spænskra stjórnvalda

Baskar mótmæla
Baskar mótmæla Mynd: Getty

Einn af leiðtogum baskneskra aðskilnaðarsinna á Spáni, Pernando Barrena segir að handtaka 23 aðskilnaðarsinna fyrir helgi sé ekkert annað en stríðsyfirlýsing að hálfu spænskra yfirvalda.

Barrena er eini háttseti meðlimur Batasuna, stjórnmálaflokks baskneskra aðskilnaðarsinna, sem enn gengur laus. Hann kallar handtökurnar á félögum sínum mannrán.

Flokkur Batasuna var bannaður á Spáni árið 2003 fyrir að fordæma ekki ofbeldi og slíta ekki samband sitt við hryðjuverkasamtökin ETA.

Handtökurnar voru gerðar á fimmtudag vegna gruns um að mennirnir 23 væru að undirbúa hryðjuverkaárás.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×