Erlent

Góðvinur Vilhjálms Bretaprins lést í Afganistan

Alexis Roberts majór
Alexis Roberts majór Mynd: APphoto

Fyrrum yfirmaður Vilhjálms Bretaprins úr Sandhurst herskólanum lést á fimmtudag í sprengjutilræði. Alexis Roberts majór er hæst setti breski hermaðurinn sem fallið hefur í Afganistan síðan Bretar sendu þangað herlið fyrir sex árum.

Sprengjan sem banaði Roberts var staðsett í vegkanti og sprakk þegar bílalest hans var á ferð rétt vestur af Kandahar.

Þar með hafa 82 breskir hermenn fallið í Afganistan.

Vilhjálmur Bretaprins var afar sorgmæddur að heyra af fráfalli Roberts því góð vinátta varð á milli þeirra þegar Roberts gegndi stöðu yfirmanns í Sandhurst skólanum, þar sem Vilhjálmur dvaldi um hríð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×