Aldrei jafn óvinsæll 24. janúar 2007 01:00 Bush forseti kom til Hvíta hússins í Washington í gær til að flytja stefnuræðu sína eftir helgardvöl í Camp David. MYND/AP
Washington Í gærkvöldi steig George W. Bush í ræðustól á Bandaríkjaþingi og flutti stefnuræðu sína, eins og Bandaríkjaforsetar gera jafnan um þetta leyti árs. Þetta er næstsíðasta stefnuræðan sem Bush flytur á embættistíð sinni. Í ræðunni, sem hann flutti klukkan tvö í nótt að íslenskum tíma, nokkru eftir að Fréttablaðið fór í prentun, hugðist Bush bjóða andstæðingum sínum á þingi samvinnu í fjölda mála á innlendum vettvangi, meðal annars heilbrigðismálum, orkumálum og menntamálum, til þess að vega upp á móti djúpstæðum ágreiningi hans við demókrata um Íraksstríðið. Samkvæmt nokkrum nýbirtum skoðanakönnunum, sem gerðar voru bæði í Bandaríkjunum og víðar um heim, hefur álit fólks á Bush og stefnu Bandaríkjastjórnar sjaldan verið minna en einmitt nú. Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum telja Bush og ríkisstjórnina vera á villi-götum, að því er fram kemur í skoðanakönnun sem AP fréttastofan lét gera. Þá telja sex af hverjum tíu litlar líkur á því að repúblikanar og demókratar geti á þingi komið sér saman um lausnir á helstu vandamálum þjóðarinnar. Á hinn bóginn hefur stuðningur Bandaríkjamanna við áform forsetans um að senda fleiri hermenn til Íraks heldur vaxið eftir að hann kynnti þau áform í ræðu í síðustu viku. Fyrir ræðuna töldu 26 prósent það vera rétt, en nú er 31 prósent komin á þá skoðun. Hins vegar eru 51 prósent mjög óánægð með frammistöðu forsetans, samkvæmt skoðanakönnun sem dagblaðið Washington Post og sjónvarpsstöðin ABC létu gera. Þá segjast 65 prósent Bandaríkjamanna vilja að bandaríska herliðið fari frá Írak á næsta ári, samkvæmt skoðanakönnun dagblaðsins Wall Street Journal og sjónvarpsstöðvarinnar NBC. Þá segir Washington Post að á síðustu sex áratugum hafi einungis tveir forsetar mælst jafn óvinsælir í skoðanakönnunum blaðsins, en það voru þeir Harry Truman þegar Kóreustríðið stóð sem hæst og Richard Nixon á tímum Watergate-hneykslisins. Breska útvarpið BBC lét enn fremur gera skoðanakönnun sem náði til 26 þúsund manna í 25 löndum í öllum heimsálfum, þar sem 73 prósent svarenda sögðust andvíg stríðinu í Írak. Þá sögðust 49 prósent telja að Bandaríkin hefðu einkum slæm áhrif í heiminum, en aðeins 29 prósent sögðu Bandaríkin hafa einkum góð áhrif.
Mest lesið „Við erum áratugum of sein“ Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent Bein útsending: Barist um formennsku í Framsóknarflokknum Innlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Innlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Fleiri fréttir Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Sjá meira