Hreifst af metnaði félagsins 18. ágúst 2007 08:00 Kieron Dyer er mjög ánægður með að vera kominn í herbúðir West Ham.
Kieron Dyer, nýjasti liðsmaður Íslendingaliðsins West Ham, segist hafa hrifist af gríðarlegum metnaði félagsins og að sá mikli vilji Eggerts Magnússonar og annarra forráðamanna þess um að koma liðinu í fremstu röð hafi ráðið mestu í ákvörðun sinni um að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið. Gengið var frá félagsskiptum Dyers frá Newcastle seint á fimmtudagskvöldið en áður hafði litið út fyrir að ekkert yrði úr kaupunum. „Það hafði áður komið fram að ég vildi fara til London til að komast nær fjölskyldu minni en það sem skiptir ekki síður máli er að West Ham er félag sem ég hef mikla trú á. Félagið hefur sýnt mikinn metnað með því að fá til sín öfluga leikmenn og ég bókstaflega elska þetta hungur sem einkennir staðinn," sagði Dyer. Eggert hefur keypt marga öfluga leikmenn til West Ham í sumar. Sam Allardyce, stjóri Newcastle, segir að vissulega sé missir af Dyer en óskaði honum alls hins besta. Kaupverðið á Dyer er talið vera um sex milljónir punda auk þess sem West Ham þarf að greiða ákveðnar upphæðir þegar Dyer hefur náð ákveðnum leikjafjölda með liðinu. Hjá West Ham hittir Dyer fyrir fyrrum félaga sinn hjá Newcastle, Lee Bowyer, en mörgum ætti að vera í fersku minni þegar þeir lentu í handalögmálum í miðjum leik fyrir nokkrum árum. Alan Curbishley, stjóri Charlton, hefur ekki áhyggjur af því að slík framkoma endurtaki sig. „Ég hef talað við báða leikmenn vegna þessa og þeir fullvissa mig um að þetta sé gleymt og grafið. Þeir eru í fínu sambandi í dag og talast reglulega við svo ég sé þetta ekki sem vandamál," sagði Curbishley.
Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Sjá meira