Erlent

Sviptur lyklum og vasapening

61 árs gamall karlmaður mætti á lögreglustöðina í Caltagirone á Ítalíu með 81 árs gamalli móður sinni og kvartaði yfir því að hún hefði hætt að gefa honum vasapeninga. Móðirin hafði líka tekið húslyklana hans þegar hann kom ekki heim á réttum tíma.



Móðirin sagði lögreglunni að sonurinn bæri enga virðingu fyrir sér, segði henni aldrei hvert hann færi á kvöldin og kæmi heim þegar honum sýndist. Hann væri líka alltaf að kvarta yfir kvöldmatnum.

Lögreglumennirnir töldu mæðginin á að fara heim og móðirin ákvað að gefa syninum aftur lyklana og vasapeninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×