Erlent

Framleiða fljúgandi furðuhlut

Bandarískt fyrirtæki hefur hafið framleiðslu á fljúgandi furðuhlut. Farartækið svífur þrjá metra yfir jörðinni og getur ferjað tvo farþega.

Farartækið er á stærð við lítinn bíl og getur hafið sig á loft án atrennu. Kosturinn við furðuhlutinn er að hann getur svifið yfir hvaða yfirborð sem er á áttatíu kílómetra hraða og þarfnast engra vega. Farartækið ætti því að gagnast á íslenska hálendinu.

Ódýrustu gerðir farartækisins gætu kostað rúmar 5,6 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×