Erlent

Fær nautið sitt í fangaklefann

Serbneskur bóndi hefur fengið leyfi til að taka naut með sér í fangelsi. Maðurinn fékk árs­langan fangelsisdóm fyrir að ráðast á mann eftir rifrildi á bar.



Dómarar komust að þeirri niðurstöðu að ef bóndinn fengi ekki að taka með sér verðlaunanautið Micko, sem vegur eitt og hálft tonn, yrði að slátra því. Enginn væri til staðar til að hugsa um nautið og það væri bóndanum of dýrmætt til að slátra því.

Sérútbúinn klefi hefur verið hannaður fyrir Micko. Ef hann og bóndinn hegða sér vel fá þeir að fara heim fyrir jól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×