Milljónir hafa þurft að flýja heimili sín 4. ágúst 2007 02:00 Þorpið Sirajganj í Bangladess hefur orðið einna verst úti í monsúnrigningunum í ár. fréttablaðið/AP
Nærri 200 manns hafa látist og 19 milljónir flúið að heiman vegna monsúnflóðanna í Bangladess og á Indlandi. Uppskera eyðilagðist víða og vegir fóru á kaf í flóðunum, sem stafa af hinni árlegu monsúnrigningu. Á Indlandi voru flóðin mest norðan til en í höfuðborginni Mumbai þurfti fólk einnig að ösla vatnið upp í hné. Rigningarnar eru mikilvægar fyrir gróður í þessum heimshluta, en þegar rignt hefur dögum saman fara ár og fljót að flæða yfir bakka sína. Monsúntímabilið í Suður-Asíu er frá júní fram í september ár hvert og jafnan lífshættulegt íbúum í þessum heimshluta. Á síðasta ári fórust þúsund manns, ýmist drukknuðu, létu lífið í aurskriðum, urðu fyrir rafmagni eða fórust þegar hús hrundu. Það sem af er þessu ári hafa 14 milljónir misst heimili sín á Indlandi og 5 milljónir í Bangladess. Eitt versta atvikið varð á Indlandi á miðvikudaginn þegar 28 manns fórust með bát í vatnsmiklu fljóti. Of margir voru um borð í bátnum, en fólkið var að flýja heimaþorp sitt þar sem allt var komið á kaf. Í Bangladess hefur þorpið Sirajganj orðið einna verst úti. Þar hafa tvö þúsund þorpsbúar neyðst til þess að yfirgefa heimili sitt. „Flóðin hafa tekið frá mér allt sem ég á,“ segir Rahmat Sheikh, fertugur bóndi í Sirajganj. „Hrísgrjónareitirnir, tvær kýr og húsið mitt. Allt er þetta farið og ég veit ekki hvernig ég á að sjá mér farborða núna.“ Heilbrigðisstarfsfólk hefur ferðast um flóðasvæðin til að reyna að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsjúkdóma á borð við taugaveiki, niðurgang og kóleru. Í Uttar Pradesh á Indlandi unnu hermenn við að koma 500 íbúum burt úr einu þorpinu. Víða í Uttar Pradesh reis vatnsyfirborðið svo hratt að fólki tókst ekki að koma sér burt í tæka tíð. „Vatnselgurinn kom svo hratt að við höfðum engan tíma til að bregðast við,“ sagði Vinod Kumar, íbúi í einu þorpanna í Basti-héraði. „Öllum eigum okkar hefur skolað burt. Við erum ekki með neinn mat, enga steinolíu og ekki einu sinni eldspýtustokk. Embættismennirnir segja að aðstoð sé á leiðinni, en ekkert hefur komið enn.“
Mest lesið Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Noem rekin Erlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Erlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Innlent Fleiri fréttir Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Sjá meira