Erlent

Önnur stóra hitabylgjan í ár

Heldur kaldara er við árbakkana og hægt að skvetta á sig vatni ef þörf krefur. fréttablaðið/AP
Heldur kaldara er við árbakkana og hægt að skvetta á sig vatni ef þörf krefur. fréttablaðið/AP

Skógareldar geisa og víðtækt rafmagnsleysi plagar íbúa í sunnanverðri Evrópu vegna mikillar hitabylgju. Er þetta önnur stóra hitabylgjan á þessu svæði í sumar og hefur hitinn valdið að minnsta kosti 33 dauðsföllum í Rúmeníu.



Þúsundir hektara af skógi vöxnu landi hafa orðið eldi að bráð á Ítalíu, í Búlgaríu, Makedóníu og Grikklandi. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða í mörgum tilfellum og hafa nokkrir verið handteknir vegna þess. Skógareldar hafa einnig geisað í Serbíu.



Þrír létust í suðurhluta Grikklands á miðvikudagskvöld þegar eldur barst í heimili í útjaðri bæjarins Aegio. Bjarga þurfti nokkrum sem voru innlyksa með því að hífa þá upp í þyrlu. Gífurlegt álag er á fólki sem vinnur við slökkvistörf á þessum svæðum og hafa flugmenn þyrlna og flugvéla sem flytja vatn á eldinn látist við störf bæði á Ítalíu og í Grikklandi.



Áttræð kona lést í norðurhluta Grikklands vegna hitaslags þegar hitinn fór upp í 45 gráður. Heilbrigðisyfirvöld í Ungverjalandi segja hitann hafa flýtt fyrir dauða hundraða alvarlegra veikra sjúklinga. Rafmagn hefur farið af stórum svæðum á vestanverðum Balkanskaga og hafa stjórnvöld ríkja þar beðið fólk um að takmarka notkun á loftræstingu til að spara rafmagn.

Gert var ráð fyrir svalara veðri í lok vikunnar en ekkert útlit er fyrir rigningu í bráð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×