Erlent

Kynlífstré í útrýmingarhættu

Hætta er á að ákveðin tegund trjáa deyi út í Úganda, að sögn vísindamanna þar í landi. Rót trésins, sem kallast omuboro, er talin örva kynhvöt manna. Trén eru því rifin upp með rótum til að fólk komist yfir ræturnar. Þar sem trén vaxa mjög hægt eru þau í útrýmingarhættu.



Drykkur úr þessum rótum er mjög vinsæll í Úganda en áhrifin af honum hafa ekki verið vísindalega sönnuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×