Olmert segist ætla að semja við Abbas 26. júlí 2007 06:00
Utanríkisráðherrar Egyptalands og Jórdaníu gengu á fund stjórnvalda í Jerúsalem í gær til að kynna formlega fyrir þeim friðaráætlun Arababandalagsins. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segist hins vegar ekki ætla að bíða eftir Arababandalaginu, heldur semja beint við Mahmoud Abbas um stofnun Palestínuríkis. Olmert staðfesti þetta á blaðamannafundi með Shimon Peres Ísraelsforseta í gær. Olmert lagði þó áherslu á að engar tímasetningar lægju fyrir. Hugmyndin er sú að Palestínuríki verði stofnað á Gaza-svæðinu og stærstum hluta Vesturbakkans, en byrjað verði á að semja um stjórnfyrirkomulag hins nýja ríkis. Að því búnu verði hægt að ræða endanleg landamæri. Friðartillögur Arababandalagsins felast í því að 22 aðildarríki bandalagsins viðurkenni Ísraelsríki gegn því að Ísraelar afhendi allt land sem þeir hertóku í stríðinu 1967. Ísraelsstjórn hafnaði þessari friðaráætlun þegar Arababandalagið kom fyrst fram með hana árið 2002, þegar uppreisn Palestínumanna var í hámarki, en dró nokkuð úr andstöðu sinni eftir að Arababandalagið ítrekaði boð sitt í mars síðastliðnum. Ísraelar tóku þá vel í boðið og sögðu það geta orðið grundvöll að frekari viðræðum. Mark Regev, talsmaður utanríkisráðuneytisins í Ísrael, sagði þessa heimsókn tvímælalaust vera sögulega: „Þetta er í fyrsta skipti sem Arababandalagið sendir fulltrúa sína til Ísraels.“ Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráðherra Egyptalands, hvatti Ísraelsmenn til að hugleiða þetta friðartilboð af fullri alvöru. „Við erum að rétta út til ykkar friðarhönd frá öllum löndum þessa heimshluta,“ sagði hinn jórdanski starfsbróðir hans, Abdul Ilah Khatib. Þeir hittu að máli bæði Shimon Peres forseta, Ehud Olmert forsætisráðherra, Tzipi Livni utanríkisráðherra og Ehud Barak varnarmálaráðherra.
Mest lesið Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Erlent Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Innlent Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Erlent Tólf prósent Íslendinga á bótum Innlent Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Erlent Fleiri fréttir Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Sjá meira