Kosið um hlutverk trúar í Tyrklandi 22. júlí 2007 05:00 Hver kosningafundurinn á fætur öðrum hefur verið haldinn síðustu daga í Tyrklandi.Fréttablaðið/AP
Átakalínurnar í þingkosningunum í Tyrklandi í dag eru einkum á milli stjórnarflokksins, sem er íhaldssamur múslimaflokkur, og svo gamla valdakjarnans, hersins og embættismannakerfisins, sem vill áfram strangan aðskilnað trúar og stjórnmála. Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra og leiðtogi Réttlætis- og þróunarflokksins, flýtti kosningum vegna ágreinings um forsetakjör nú í vor. Kjörtímabil núverandi forseta, Ahmets Necdets Sezer, rann út 17. maí síðastliðinn en hann situr enn vegna þess að stjórnarandstöðunni tókst að koma í veg fyrir að Abdullah Gül, utanríkisráðherra og forsetaframbjóðandi stjórnarflokksins, næði kjöri. Gamli valdakjarninn óttast að hinn íslamski flokkur vilji efla áhrif trúarinnar til muna í stjórnmálum landsins, en forsætisráðherrann segir jafnan ekkert hæft í því. Þó vill flokkurinn afnema bann við því að konur beri höfuðklúta að íslömskum sið í byggingum hins opinbera. Mannréttindaástandið í Tyrklandi hefur hins vegar batnað töluvert á stjórnartíma Réttlætis- og þróunarflokksins, enda hefur stjórnin unnið markvisst að margvíslegum umbótum í því skyni að Tyrkland geti fengið aðild að Evrópusambandinu. Hugsanleg aðild Tyrklands að Evrópusambandinu hefur hins vegar lítið komið til tals í kosningabaráttunni. Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn er jafn áhugasamur og stjórnarflokkurinn um aðild. Áhugi almennings á aðild hefur hins vegar hrapað niður í algert lágmark eftir að áhrifamikil Evrópuríki, einkum þó Frakkland, lýstu yfir efasemdum sínum um og jafnvel harðri andstöðu við að Tyrkland fengi nokkurn tímann aðild. Tyrkneski herinn hefur aftur á móti á undanförnum vikum verið að efla mjög viðbúnað sinn í kúrdahéruðunum við landamæri Íraks. Ástæðuna segja Tyrkir vera að kúrdískir aðskilnaðarsinnar hafa gert árásir frá norðurhluta Íraks, þar sem þeir njóta stuðnings meðal félaga sinna. Írakar kvarta hins vegar mjög undan þessum aukna viðbúnaði tyrkneska hersins og segja greinilegt að Tyrkir ætli sér að ráðast inn í Írak. „Allt getur gerst,“ sagði Erdogan forsætisráðherra þegar hann var spurður hvort bardagar gætu brotist út á landamærunum eftir kosningarnar. „Þetta gæti komist á dagskrá. Allt sem er nauðsynlegt væri hægt að framkvæma strax. Við erum vissulega fær um það.“
Mest lesið Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Erlent Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Innlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent „Við ætlum ekki að líða þetta“ Innlent Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Innlent Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Innlent Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Innlent Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Innlent Fleiri fréttir Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Sjá meira