Dauðadómur og ævilangtfangelsi fyrir þrælahald 18. júlí 2007 02:00 Þessi kona vinnur hörðum höndum í einni af fjölmörgum múrsteinsverksmiðjum í Kína. Þar hefur fólki verið haldið í nauðungarvinnu. fréttablaðið/AFP
Forstjóri, verkstjóri og undirverkstjóri í kínversku múrsteinsbrennslufyrirtæki voru í gær dæmdir fyrir þrælahald og misþyrmingar á starfsfólki. Verkstjórinn, Heng Tinghan, hlaut ævilangt fangelsi fyrir að hafa vísvitandi valdið fólki líkamsmeiðslum og haldið því föngnu með ólöglegum hætti. Hann hélt 34 starfsmönnum í þrældómi, þar af voru níu þroskahamlaðir. Við réttarhöldin kom fram að frá marsmánuði árið 2006 þar til í maí á þessu ári hafi nítján af verkamönnunum meiðst vegna barsmíða og einn látið lífið. Einnig kom fram að starfsfólkið hafði mætt í vinnu klukkan fimm að morgni og oft ekki fengið að hætta fyrr en klukkan 23 að kvöldi. Fullyrt var að Heng hafi skipað undirverkstjórum sínum að berja „letingjana“ sem sýndu ekki nógan dugnað. Einn undirverkstjóra Hengs, Zhao Yanbing, hlaut dauðadóm fyrir að berja einn verkamannanna, Liu Bao, svo illa að hann lét lífið. Zhao hafði áður viðurkennt að hafa barið þroskaheftan starfsmann með skóflu fyrir að sinna starfinu ekki nógu vel. Þá var Wang Bingbing, forstjóri verksmiðjunnar, dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að hafa haldið fólki föngnu með ólöglegum hætti. Dómarnir koma í kjölfar umfangsmikillar rannsóknar á þrælahaldi í múrsteinaverksmiðjum í kínverskum sveitahéruðum. Fjölmiðlar hófu að greina frá málinu eftir að fjöldi foreldra lýsti eftir börnum sínum sem þeir sögðu hafa verið rænt og send til vinnu við brennsluofna verksmiðjanna. Kínverski kommúnistaflokkurinn segist hafa hafið herferð gegn þrælahaldi og nauðungarvinnu. Síðustu mánuði hafa tæplega þúsund manns hlotið frelsi úr slíkri ánauð fyrir tilstilli lögreglunnar. Forstjórinn Wang Bingbing hlaut níu ára fangelsisdóm.fréttablaðið/ap .
Tengdar fréttir Komust úr þyrlunni áður en henni hvolfdi Flak björgunarþyrlunnar TF-SIFJAR er nú geymt í flugskýli á vegum Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF) eftir að því var bjargað í land aðfaranótt þriðjudags. RNF hefur tekið yfir forræði yfir flakinu af Landhelgisgæslunni (LHG) og vinnur að frumrannsókn slyssins. 18. júlí 2007 01:00 Mest lesið „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Innlent Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Erlent Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Innlent Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Innlent Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Innlent Fleiri fréttir Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Sjá meira
Komust úr þyrlunni áður en henni hvolfdi Flak björgunarþyrlunnar TF-SIFJAR er nú geymt í flugskýli á vegum Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF) eftir að því var bjargað í land aðfaranótt þriðjudags. RNF hefur tekið yfir forræði yfir flakinu af Landhelgisgæslunni (LHG) og vinnur að frumrannsókn slyssins. 18. júlí 2007 01:00