Erlent

Segir stríðið hafa aukið öryggi

Ehud Olmert umkringdur lífvörðum við landamærin að Líbanon í gær.
Ehud Olmert umkringdur lífvörðum við landamærin að Líbanon í gær. MYND/AP

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, heimsótti í gær byggðirnar nyrst í Ísrael, sem verst urðu úti í hinu mánaðarlanga stríði Ísraels við Hezbollah-skæruliða í Líbanon, en rétt ár var í gær frá því það hófst. Fullyrti Olmert við þetta tækifæri að stríðið, sem sætt hefur mikilli gagnrýni innan Ísraels, hefði gert landamæri landsins öruggari.

Olmert endurnýjaði jafnframt tilboð um að hefja friðarviðræður við Sýrlendinga og tók fram að Ísraelar hefðu „engan áhuga“ á að lenda í stríði við Sýrland. Meðan á ferð Olmerts um landamæra­byggðirnar stóð sagði hann að hið 34 daga langa stríð síðasta sumar hefði opinberað veikleika í hernaðargetu Ísraels og sagði að ríkisstjórn sín væri að vinna að því að bæta úr þeim.

Yfir 1.000 Líbanar og 158 Ísraelar, þar af 119 hermenn, féllu í átökunum sem hófust í kjölfar þess að Hezbollah-liðar réðust á ísraelska hermenn sem voru við landamæragæzlu, felldu þrjá og tóku tvo til fanga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×