Erlent

Frjáls eftir 155 daga í haldi

Hannelore Krause segist hafa verið starfsmaður austurríska sendiráðsins í Bagdad.
Hannelore Krause segist hafa verið starfsmaður austurríska sendiráðsins í Bagdad. MYND/AP

Þýskri konu, sem var rænt ásamt syni sínum af uppreisnarhópi í Írak fyrir 155 dögum, var sleppt á þriðjudaginn. Sonur hennar er enn í haldi.

Utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, tilkynnti um lausn Hannelore Krause, sem er 61 árs gömul, í gær og bætti því við að allt yrði reynt til að fá son hennar lausan.

Uppreisnar­hópurinn, Örvar ráðvendni, birti myndband af mæðginunum í mars og apríl og hótaði að myrða þau ef þýsk stjórnvöld drægju ekki herlið sitt frá Afganistan innan tíu daga. Þýskaland er med 3.000 hermenn í Afganistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×