Erlent

Fjórir lífstíðardómar felldir

Arthur Burton-Garbett elti einn fjórmenninganna út úr neðanjarðarlest þann 21. júlí 2005.
Arthur Burton-Garbett elti einn fjórmenninganna út úr neðanjarðarlest þann 21. júlí 2005. MYND/AP

Fjórir menn á þrítugsaldri hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir að ætla að fremja hryðjuverk í Lundúnum hinn 21. júlí árið 2005, tveimur vikum eftir að 52 manns dóu í sjálfsmorðsárásum í borginni.

Mennirnir komu bakpokum fullum af sprengiefni fyrir í þremur neðanjarðarlestum og í strætisvagni. Sprengjurnar sprungu ekki og enginn slasaðist.

Dómarinn sagði að ef sprengjurnar hefðu sprungið hefðu allt að 50 manns getað dáið og hundruð særst. Hann sagði að al-Kaída hefði staðið á bak við sprengjutilræðin. Mennirnir kváðust saklausir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×