Átökum um rauðu moskuna lokið 12. júlí 2007 04:30 Átök í hálfan annan sólahring. Pakistanskir sérsveitarmenn snúa til baka eftir að hafa tekið þátt í árásinni á rauðu moskuna. MYND/AP
Óvíst er enn hvaða áhrif árásin á rauðu moskuna í Íslamabad mun hafa á álit landsmanna í Pakistan á Pervez Musharraf forseta. Töluvert hefur verið um mótmæli gegn honum síðustu daga. Um 500 manns komu saman í Peshavar í gær og hrópuðu vígorð gegn forsetanum, og um fimmtán manns komu einnig saman framan við byggingu hæstaréttar í Íslamabad til að krefjast afsagnar Musharrafs. „Aðgerðinni er lokið. Allir sem voru inni eru komnir út,“ sagði Shaukat Aziz, forsætisráðherra Pakistans, við blaðamenn að átökunum loknum snemma í gær. Hann sagði engin lík af konum eða börnum hafa fundist og taldi litlar líkur á að fleiri lík myndu finnast. Meira en 50 herskáir múslimar og tíu hermenn létu lífið í átökunum, sem hófust fyrir dögun á þriðjudag og stóðu samfleytt í 35 klukkustundir. Alls hafa átökin um moskuna, sem hófust snemma í síðustu viku, kostað meira en 80 manns lífið. Einn af foringjum í pakistanska hernum sagði síðustu klukkustundir átakanna hafa farið þannig fram að hermenn fóru á milli herbergja í kjallara kóranskólans, sem er við hlið moskunnar, þar sem þeir sprengdu upp hvert fylgsni andstæðinga sinna á fætur öðru. Stjórnvöld í Pakistan halda því fram að 1.300 manns, bæði karlar, konur og börn, hafi komið út úr byggingunum frá því að umsátrið hófst fyrir rúmri viku. Áður en innrásinni lauk var talið að hundruð manna gætu hugsanlega verið þar enn, og í gær voru margir foreldrar að leita að börnum sínum, inni í moskunni.
Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Innlent Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Innlent Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Innlent Fleiri fréttir Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Sjá meira