Erlent

Blair ætlaði að segja af sér

Fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi forsætisráðherrans segir að Blair hafi ætlað að segja af sér árið 2002.
Fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi forsætisráðherrans segir að Blair hafi ætlað að segja af sér árið 2002.

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Englands, var búinn að ákveða að segja af sér nokkrum mánuðum áður en Íraksstríðið hófst í mars árið 2003. Þetta segir Alastair Campbell, fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi forsætisráðherrans, í dagbókum sínum „The Blair Years“ sem verða gefnar út í dag.

Að sögn Campbells ætlaði Blair að tilkynna afsögn sína á flokksþingi Verkamannaflokksins í september árið 2002; hugmynd hans var að láta af embætti fyrir næstu kosningar í landinu sem haldnar voru árið 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×