Erlent

Loka kjarnorkukljúfi

Kim jong Il
Kim jong Il

Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðu í gær að þau ætluðu að loka helsta kjarnorkukljúfi landsins, Yongbyon, í skiptum fyrir að fá send tíu prósent af þeim 50 þúsund tonnum af hráolíu sem þeim var lofað fyrir að loka honum. Þetta er í fyrsta skipti sem stjórnvöld í landinu segja hvenær þau ætli að loka kljúfinum.

Stjórnvöld í Suður-Kóreu sögðu í gær að þau ætluðu að senda rúm sex þúsund tonn af hráolíu til Norður-Kóreu þann 12. júlí.

Stjórnvöld í Norður-Kóreu skrifuðu undir afvopnunarsamning við Bandaríkin, Kína, Japan og Rússland í febrúar þar sem þau lofuðu að loka Yongbyon-kljúfinum í staðinn fyrir 50 þúsund tonn af hráolíu.

Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa dregið að standa við samninginn vegna þess að þau áttu í deilum við Bandaríkjastjórn eftir að fjárinnistæður þeirra á erlendum bankareikningum höfðu verið frystar. Sú deila var leyst að fullu í síðustu viku.

Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, sagði á fundi við aðstoðarutanríkisráðherra Kína á þriðjudag – eftir að deilan við Bandaríkin hafði verið leyst – að hann ætlaði að standa við afvopnunarsaminginn. Þá tók hann hins vegar ekki fram hvenær hann ætlaði að gera það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×