Erlent

Undrun á lofi Bush á Pútín

Eins og ekkert hefði í skorist.
Eins og ekkert hefði í skorist. fréttablaðið/ap

Eftir að hafa setið mánuðum saman undir harkalegri gagnrýni á Bandaríkin og utan­ríkisstefnu þeirra úr munni hins rússneska starfsbróður síns bar George W. Bush Bandaríkjaforseti lof á Vladimír Pútín fyrir einlægni hans og hreinskilni, er leiðtogarnir tveir hittust í sumarhúsi Bush-fjölskyldunnar í Kennebunkport í Maine í byrjun vikunnar.

Nú undrast bandarískir Rússlandsmálasérfræðingar hin mildilegu viðbrögð Bush við hörðum orðum Pútíns.



Stjórnmálaskýrendur vestra segja lof Bush í garð Pútíns til merkis um að Bandaríkjastjórn áliti Rússland nú aftur vera veldi sem þurfi að taka tillit til. En sumir Rússlandsmálasérfræðingar, svo sem Michael McFaul við Stanford-háskóla, segja að Bush sé með þessu að verðlauna Rússlandsforseta fyrir hegðun sem ráðamenn Vesturlanda ættu ekki að láta óátalda.



Frá bæjardyrum Kremlverja séð endurspegla hinar hlýju móttökur sem Pútín fékk hjá Bush bæði persónulega vináttu þeirra og endurreistan styrk og áhrif Rússlands í heimsmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×