Erlent

Konur og karlar tala jafnmikið

Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa komist að því að bæði kynin tala jafnmikið.Í rannsókninni voru hljóðnemar festir á tæplega fjögur hundruð háskólanema í allt frá tveimur dögum upp í tíu í senn. Reiknað var út hversu mörg orð hver sagði á hverjum degi.



Niðurstaðan var sú að konur sögðu að meðaltali 16.215 orð daglega, en karlmenn 15.669.Munurinn, 546 orð, er ekki tölfræðilega marktækur, enda munaði 45 þúsund orðum á þeim sem mest talaði og þeim sem sagði minnst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×