Uppgjör við öfgaklerka í Pakistan 6. júlí 2007 04:00 Kóranskólanemar úr Rauðu moskunni gefast upp fyrir umsátursmönnum í gær. Nærri 1.000 manns voru enn inni í henni. fréttablaðið/ap
Herskár múslimaklerkur, sem pakistanskar öryggissveitir tóku höndum er hann reyndi að flýja dulbúinn í kvennakufl, sagði í gær að hinir nærri því þúsund fylgismenn sínir, sem enn væru í Rauðu moskunni í Íslamabad sem stjórnarherinn hefur nú setið um í tvo daga, ættu að gefast upp eða flýja. Þessi ummæli klerksins, Maulana Abdul Aziz, jók vonir um að takast mætti að binda enda á umsátrið án þess að til blóðbaðs kæmi. En bróðir Aziz var enn inni í moskunni og hann sagðist ekki sjá neina ástæðu til uppgjafar. Byssuskothríð og sprengingar heyrðust með reglulegu millibili í kringum moskuna, sem ýmist er kölluð Rauða moskan eða Lal Masjid, í gær. Að sögn forsvarsmanna umsátursins voru allt að 100 þungvopnaðir bardagamenn meðal fólksins inni í moskunni, sem flest er annars námsmenn af báðum kynjum úr kóranskóla sem tengist moskunni. Frá því áhlaupið hófst að moskunni á miðvikudag hafa minnst sextán manns fallið, þar af átta bardagamenn íslamista. Umsátrið er liður í uppgjöri ríkisstjórnar Pervez Musharrafs hershöfðingja við Aziz og fylgismenn hans. Aziz hefur barizt fyrir því að sjaríalög íslams yrðu tekin upp í Pakistan, rétt eins og talibanar gerðu í Afganistan. Síðan í janúar hafa klerkarnir staðið uppi í hárinu á yfirvöldum með því að senda nema sína til að fylla sæti bókasafns í borginni, þjarma að verslunarrekendum sem seja vestrænar bækur og kvikmyndir, og með því að ræna meintum vændiskonum og lögreglumönnum. Allt er þetta gert í nafni „siðaherferðar“ í anda talibana. Að sögn talsmanna yfirvalda eiga Aziz og bróðir hans, Abdul Rashid Ghazi, yfir höfði sér ákærur í mörgum liðum, þar á meðal fyrir mannrán, að hvetja til manndrápa, brot á vopnalögum og fleira. Konur, börn og aðrir fylgismenn þeirra, sem ekki hefðu gerst sekir um glæpi, yrði sleppt án ákæru.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Sjá meira