Erlent

Sagði olíu vera ástæðu hersetu

Brendan Nelson
Brendan Nelson

Forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, þvertók í gær fyrir að olíuhagsmunir hefðu nokkuð með innrásina í Írak að gera. Brendan Nelson varnarmálaráðherra hafði stuttu áður sagt að helsti tilgangur veru ástralskra hermanna í Írak væri að verja olíulindir landsins.



„Írak er mikilvæg uppspretta orku, sérstaklega olíu, fyrir umheiminn og Ástralar þurfa að hugsa um hvað brottför frá Írak hefði í för með sér,“ sagði Nelson.



„Ástæða þess að við erum ennþá í Írak er að við viljum gefa Írökum tækifæri til að njóta lýðræðisins,“ sagði Howard til leiðréttingar. Um 1.600 ástralskir hermenn eru enn í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×