Erlent

Lugovoi verður ekki framseldur

Alexander Litvinenko
Alexander Litvinenko

Ríkissaksóknari í Rússlandi hefur neitað því að framselja viðskiptajöfurinn Andrei Lugovoi, sem bresk yfirvöld gruna um að hafa eitrað fyrir fyrrverandi KGB-njósnaranum Alexander Litvinenko.



Neitun ríkissaksóknara er byggð á banni í stjórnarskrá Rússlands við framsali ríkisborgara til erlendra ríkja. Þetta hefur einnig Vladimir Pútin Rússlandsforseti sagt opinberlega.



Litvinenko lést á sjúkrahúsi í London í nóvember 2006 eftir pólóníum-eitrun. Bresk sakarannsókn leiddi til þess að grunur féll á Lugovoi, sem starfaði með Litvinenko í KGB á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×