Erlent

14 fundust látnir eftir aurskriðu í Mexíkó

Björgunarsveitarmenn fundu í gær fjórtán látna í rútu sem varð undir aurskriðu í fyrradag. Lítil von þykir til þess að nokkur af þeim fjörutíu til sextíu farþegum rútunnar hafi komist lífs af úr slysinu-.

Hundruð hermanna og björgunarsveitarmanna hafa grafið á vettvangi frá því slysið varð.



Talið er að miklar rigningar að undanförnu hafa valdið skriðunni.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×