Erlent

700 gáfust upp

Einn af þeim sem lét lífið í átökum á milli pakistanskra hermanna og heit­trúaðra múslíma við Rauðu moskuna í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í fyrradag.
Einn af þeim sem lét lífið í átökum á milli pakistanskra hermanna og heit­trúaðra múslíma við Rauðu moskuna í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í fyrradag. Ap/fréttablaðið

Meira en 700 róttækir fylgismenn Rauðu moskunnar í Islamabad, höfuðborg Pakistans, sem pakistanski herinn hefur setið um í nokkra daga, gáfust upp í gær. Sextán manns létu lífið í átökum á milli fylgismanna moskunnar og hersins á þriðjudag. Frestur fylgismanna moskunnar til að gefast upp rann út í gærmorgun.



Talið er að mörg þúsund manns séu inni í moskunni og hafa yfirvöld í Pakistan lofað konum og börnum friðhelgi ef þau gefast upp en að menn sem hafi tekið þátt í bardögum við herinn verði sóttir til saka.

Bardagar héldu áfram við moskuna í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×